HSS
HSS

Íþróttir

Sömdu til þriggja ára
Sunnudagur 31. desember 2006 kl. 14:56

Sömdu til þriggja ára

Hart verður barist um spilatíma milli stanganna hjá knattspyrnuliði Keflavíkur í sumar. Á dögunum skrifuðu markverðirnir Ómar Jóhannsson og Bjarki Freyr Guðmundsson undir þriggja ára samning við félagið.

Ómar er aðalmarkvörður Keflvíkinga og varð með þeim bikarmeistari í sumar en að tímabilinu loknu ákvað varamarkvörður Keflavíkur, Magnús Þormar, að ganga í raðir Stjörnunnar í Garðabæ.

Bjarki var aðalmarkvörður hjá ÍA í sumar svo samkeppnin um stöðu aðalmarkvarðar í Keflavíkurliðinu verður mikil á komandi leiktíð. Báðir hafa þeir Ómar Jóhannsson og Bjarki Guðmundsson orðið bikarmeistarar með Keflavík svo það verður úr vöndu að ráða í sumar fyrir Kristján Guðmundsson þjálfara Keflavíkur.

VF-myndir/ Jón Örvar Arason
www.keflavik.is

 


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn