Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Snjólfur framlengir í Ljónagryfjunni
Snjólfur og Friðrik Pétur Ragnarsson geirnegla áframhaldandi samstarf.
Þriðjudagur 3. júlí 2018 kl. 16:45

Snjólfur framlengir í Ljónagryfjunni

Snjólfur Marel Stefánsson er klár í slaginn með Njarðvík í Domino´s-deild karla á næstu leiktíð. Snjólfur framlengdi við félagið um eitt ár en hann var lykilmaður í Íslandsmeistaraliðið unglingaflokks UMFN og var með 5,2 stig, 5,2 fráköst og 2,2 stoðsendingar að meðaltali í leik í Domino´s-deildinni síðasta tímabil á rúmum 19 mínútum að meðaltali í leik. Snjólfur er nýorðinn 20 ára og er m.a. fyrrum handhafi Elfarsbikarsins, segir á vefnum umfn.is.
 
Snjólfur er nú á fullu í undirbúningi með U-20 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í lokakeppni A-deildar sem fram fer í Þýskalandi 14.-22. júlí næstkomandi. Ísland er þar í riðli með Ítalíu, Svíþjóð og Serbíu.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024