Snjólfur frá í mánuð
Snjólfur Marel Stefánsson, leikmaður Njarðvíkur í Dominos deild karla í körfubolta, er meiddur og verður frá næsta mánuðinn. Talið er að um meiðsli í liðþófa sé að ræða.
Oddur Kristjánsson og Jón Sverrisson eru einnig báðir meiddir enn og verða frá líklegast út árið. Óvíst er hvort Hjörtur Hrafn Einarsson muni spila meira með Njarðvíkingum en hann verður að minnsta kosti ekki með liðinu á næstunni, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.