Snæfell vinnur í fyrsta úrslitaleik
Heyrst hefur að hópur gamalla jálka úr körfuboltaliði Njarðvíkur sé að taka sig saman um að stofna nýtt félag, Ljónin, sem taki þátt í 2. deildinni næsta vetur.
Þar eru gamalkunnar kempur eins og Friðrik Ragnars, Jói Kristbjörns og sjálfur Teitur Örlygsson fremstir á meðal jafningja og verða bakkaðir upp af góðum hópi yngri og eldri leikmanna og er markmiðið að vinna sig upp um deild sem fyrst.
Það verður án efa skemmtilegt að fylgjast með þessu framtaki og verður ekki síður gaman fyrir strákana sem eru í hinum liðunum að etja kappi við þessar hetjur sem hafa verið ungum leikmönnum fyrirmyndir í áraraðir.
Fróðlegt verður að sjá hvort „gömlu mennirnir“ hafi enn það sem til þarf en þeir hafa flestir afrekað allt sem hægt er á löngum ferli.
Spurning hvort það þurfi ekki Kana til að styrkja hópinn... Sting upp á að hringja í lögguna í Detroit og spyrja um Rondey!