Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Íþróttir

Sleipnir Íslandsmeistari í brazilian jiu jitzu
Fimmtudagur 22. nóvember 2012 kl. 09:58

Sleipnir Íslandsmeistari í brazilian jiu jitzu

 


Íslandsmeistaramót fullorðinna í Brazilian jiu jitsu var haldið um helgina í Þróttaraheimilinu í Laugardal.
 

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Mjölnismenn urðu hlutskarpastir í keppni liða en Júdódeild Njarðvíkur, Sleipnir var í öðru sæti. Þetta væri ekki frásögu færandi nema hvað aðeins tveir keppendur kepptu fyrir hönd Sleipnis. Báðir sigruðu þeir sína flokka. Guðmundur Stefán Gunnarsson sigraði +100 kílógramma flokkinn nokkuð örugglega með því að þvinga fram uppgjöf andstæðinga sína á armlásum. Þess má geta að Guðmundur er yfirþjálfari júdódeildar UMFN, Sleipnis. Björn Lúkas Haraldsson sigraði sinn flokk. Fyrsta bardagann vann hann á stigum og síðustu þrjá vann hann ýmist á hengingum eða armlásum. Það er mikið afrek hjá Birni að sigra þetta mót því hann er einungis 17 ára gamall.

 

Þess má geta að Björn Lúkas vann einnig sinn flokk á  Íslandsmeistaramóti ungmenna sem haldið var helgina á undan. Óhætt er að segja að nóvembermánuður hafi verið viðburðaríkur fyrir júdódeildina þar sem að deildin varð einnig Íslandsmeistari ungmenna í brazilian jiu jitzu sunnudaginn 11. nóvember.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25