Slakir Keflvíkinar töpuðu 0:3 gegn Blikum
„Eigum við ekki að vona að við séum búnir að taka út slæma kaflann í sumar. Ég veit hreinlega ekki hvað er í gangi,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur eftir 0:3 tap gegn frískum Blikum á Sparisjóðsvellinum í kvöld.
Heimamenn, sem léku sinn lakasta leik í áraraðir gegn Fram í síðustu umferð voru í svipuðum gír í fyrri hálfleik í kvöld og voru baráttulitlir, hugmyndasnauðir og hreinlega lélegir. Blikar skoruðu eitt mark og voru ekki að gera miklu meira en heimamenn en voru þó miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum þó svo færin hafi látið á sér standa. Mark þeirra kom á 17. mínútu. Hægri bakvörður Blika vann boltann af Guðmundi Steinarssyni og brunaði upp kantinn og gaf svo boltann fyrir markið. Þar kom Kristinn Steindórsson og laumaði sér einhvern veginn á milli sofandi varnarmanna Keflavíkur og skoraði með lausu skoti í hornið.
Keflvíkingar voru mun hressari í seinni hálfleik og fengu víti strax á 49. mínútu að því er virtist þegar Jón Gunnar Eysteinsson féll inni í teig eftir samstuð við einn Blikann. Magnús Sverrir Þorsteinsson fór á vítapunktinn en skot hans fór langt yfir markið. Til að bæta gráu ofan á svart skoruðu Blikar heppnismark þegar bakvörðurinn Árni K. Gunnarsson skoraði af 35 metra færi. Hann virtist vera að gefa boltann fyrir markið en hann kom hátt að markinu og Ómar Jóhannsson kallaði og sagðist hafa hann en náði ekki til boltans sem endaði öllum að óvörum í markinu. Hrikalega klaufalegt en Ómar var að leika sinn fyrsta leik í sumar því Lasse Jörgensen er meiddur í nára. Keflvíkingar áttu nokkur færi eftir þetta áfall en boltinn vildi ekki inn fyrir marklínu Blikanna og til að toppa ömurlegheitin bættu Blikar þriðja markinu við á 86. mínútu. Þá gaf Guðjón Árni Antónísson innkast beint á Blika sem brunaði upp að vítateig Keflavíkur og skoraði 3:0 og var þar Alfreð Finnbogason að verki. Litlu munaði að Alfreð bætti fjórða markinu við þegar hann skaut framhjá á lokamínútunni.
Lokatölur því 3:0 og annað tap Keflavíkur í röð staðreynd.
Það var fátt um fína drætti hjá Keflvíkingum og erfitt að nefna leikmenn sem stóðu upp úr. Vörnin var oft einhvern veginn úti á þekju, sérstaklega Bjarni Holm sem missti boltann tvívegis í fætur Blika í dauðafæri og virkaði oft þungur. Það er þó ekki hægt að kenna honum einum um þetta því það var alveg sama hvað Keflvíkingar reyndu. Það gekk ekki neitt, hvorki í vörn né sókn. Keflvíkingar hafa fengið átta mörk á sig í tveimur leikjum og ekki skorað neitt. Liðið sem var skapandi og skemmtilegt fyrr í sumar er núna heillum horfið eftir tvö slæm töp. Það er alveg sama hvert er litið í leik liðsins og ljóst að mannskapurinn þarf að taka sig saman í andlitinu í næstu leikjum.
Guðjón Árni Antóníusson liggur í grasinu eftir baráttu við Kristinn Steindórsson.
Jóhann B. Guðmundsson með boltann í sókninni. VF-myndir/Páll Orri Pálsson.