Slæmt tap í Hólminum
Keflvíkingar máttu sætta sig við stórt tap gegn Snæfelli á heimavelli þeirra síðarnefndu í Iceland Express deildinni í gærkvöldi, 102-87.
Skemmst frá að segja voru Keflvíkingar ekki að leika vel þar sem fór flest saman, slæm hittni, slök vörn og baráttuleysi. Snæfellingar mættu hins vegar tilbúnir til leiks þar sem baráttan var í fyrirrúmi, en Snæfell hefur mátt játa sig sigraða gegn Keflavík í úrlsitum síðustu tveggja ára.
Snæfellingar náðu frumkvæðinu með góðum kafla í fyrsta leikhluta og stjórnuðu leiknum eftir það. Staðan í hálfleik var 53- 45.
Sigurður Ingimundarson sagði sína menn hafa spilað illa. „Við vorum bara rosalélegir. Við mættum illa stemmdir og spiluðum illa. Það má samt ekki taka af Snæfellingum að þeir spiluðu vel og sýndu mikla baráttu.
Þetta eru hins vegar leikirnir sem við getum lært af og við munum bara þjappa okkur saman og standa okkur betur næst.“