Skráning hafin í lávarða og hefðarmeyjamótið í Grindavík
Lávarða og hefðarmeyjamót 30 ára og eldri í körfuknattleik verður haldið í Íþróttahúsi Grindavíkur laugardaginn 23. október 2004. Spilað verður á tveimur völlum og er þátttökugjald kr. 1000 á hvern einstakling.
Nú þegar hafa verið skráð 11 lið, 8 kvennalið og 3 karlalið og er athyglisvert að karlaliðin eru mun færri. Leiktími er ekki ákveðinn, en hann mun ráðast af fjölda liða. Dómarar mótsins verða úr meistaraflokki Grindavíkur. Sundlaug Grindavíkur verður opin fyrir mótsgesti og fyrirhugað er að hittast á veitingahúsi og skemmta sér saman að loknu móti.
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 20. október og verður niðurröðun send út það kvöld eða morguninn eftir. Við skráningu tekur Ellert Sig. Magnússon í síma 426-7036, 822-3100 eða [email protected]