HSS
HSS

Íþróttir

Fimmtudagur 24. október 2002 kl. 12:53

Skorað yfir 900 þrista

Guðjón Skúlason hefur skorað yfir 900 þrista í úrvalsdeild en það gerðist í síðustu leikjum úrvalsdeildar. Enginn hefur skorað fleiri þriggjastiga körfur en sá sem kemur næst honum, Teitur Örlygsson, er "aðeins" með 697 slíkar. Þess má geta að á topp-tíu lista yfir þá sem skorað hafa flesta þrista eru sex leikmenn af Suðurnesjum.

Hinir fjórir eru Valur Ingimundarson, Kristinn Friðriksson, Falur Harðarson og Marel Guðlaugsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn