Skólahreysti haldin í tólfta sinn
Skólahreysti, hreystikeppni grunnskólanna, verður haldin í tólfta sinn á næstu vikum með þátttöku 110 grunnskóla af öllu landinu. Undankeppni Skólahreysti hefst í Reykjanesbæ í dag, fimmtudaginn 3. mars en henni lýkur á Egilsstöðum fimmtudaginn 31. mars. Landsbankinn er áfram aðalbakhjarl Skólahreysti og þættir um undankeppnina verða sýndir á RÚV í mars og apríl. Úrslitakeppni tólf skóla sem ná bestum árangri verður í Laugardalshöll miðvikudaginn 20. apríl í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
„Það hefur verið leiðarljós keppninnar frá upphafi að hvetja börn og unglinga um allt land til að taka þátt í alhliða íþróttaupplifun. Skólahreysti snýst ekki bara um að sigra eða vera bestur heldur að þroska andlegt og líkamlegt atgervi samhliða því að efla félagsleg samskipti kennara, nemenda og foreldra,“ segja hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir, stofnendur Skólahreysti.
„Skólahreysti hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og verið börnum og unglingum mikil hvatning. Við í Landsbankanum höfum lagt mikla áherslu á að styðja við íþrótta- og æskulýðsstarf og erum stolt af stuðningi okkar við keppnina síðustu ár,“ segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans.
Keppnin í ár er sú tólfta en fyrsta Skólahreystimótið var haldið vorið 2005. Vel yfir 600 krakkar keppa fyrir hönd skóla sinna og nokkur þúsund krakkar eru virk í litríkum stuðningsliðum. Fjölmargir nemendur taka þátt í valáföngum um Skólahreysti en um 70 skólar bjóða upp á slíka áfanga.
Auk Landsbankans nýtur Skólahreysti stuðnings mennta- og menningarmálaráðuneytisins, norrænu ráðherranefndarinnar, Toyota og Íþrótta- og Ólympíusambandsins.
Þar sem mikill fjöldi skóla tekur þátt í keppninni er nauðsynlegt að halda undankeppnir til að ákvarða hvaða skólar keppa í úrslitakeppninni sjálfri í lok keppnistímabilsins. Undanriðlar eru tíu talsins og eru þær svæðisbundnar, þ.e. skólar frá sama landssvæði keppa innbyrðis sín á milli.