Bygg
Bygg

Íþróttir

  • Skiptir máli að hafa trú á sjálfum sér
    Kristmundur ætlar sér á sitt annað heimsmeistaramót í Seoul á árinu. Ólympíuleikarnir eru svo á markmiðalistanum. VF/myndir Eyþór Sæm.
  • Skiptir máli að hafa trú á sjálfum sér
Laugardagur 28. janúar 2017 kl. 09:00

Skiptir máli að hafa trú á sjálfum sér

Kristmundur stefnir á Tókýó 2020

Keflvíkingurinn Kristmundur Gíslason varð fyrstur félagsmanna til þess að keppa á heimsmeistaramóti fullorðinna í taekwondo fyrir tveimur árum. Hann ætlar sér aftur á HM í ár en hefur einnig sett stefnuna á ólympíuleikana í Tókýó árið 2020.

Kristmundur er 21 árs og hefur æft taekwondo frá átta ára aldri. Hann slysaðist á æfingu með vini sínum en féll strax fyrir íþróttinni sem hann hefur stundað af krafti síðan. Sérstaklega hefur hann æft vel síðustu tvö ár enda stefnir hann í hæstu hæðir. Undirbúningur fyrir HM er í fullum gangi en landsliðsþjálfari á eftir að velja liðið. „Ég er búinn að vera að æfa með það í huga að ég sé að fara,“ segir Kristmundur sem er að æfa að jafnaði 8 til 10 sinnum í viku. Hann hefur sett sér fjölda markmiða og stóri vinningurinn eru sjálfir ólympíuleikarnir þar sem hann telur raunhæft að komast inn. „Já ég sé það alveg fyrir mér. Ástæðan fyrir því að ég set mér þetta markmið núna er að það fer mikil vinna í að komast á leikana. Maður þarf að safna sér inn mikið af stigum á sterkum mótum.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kristmundur er duglegur í styrktarþjálfun en hann er að læra einkaþjálfun samhliða því að þjálfa hjá Keflavík í taekwondo. Á daginn vinnur hann svo í leikskóla. Mikill tími fer í að undirbúa sig undir stórmót og nær Kristmundur ekki að vinna eins mikið og hann vildi. Hann þarf mikið að fara til útlanda til þess að keppa og það tekur sinn toll bæði tímalega og fjárhagslega. „Þetta þarf alltaf að vera í fyrsta sæti og maður er ekki mikið að fara út með félögunum um helgar eða þess háttar.“ í kringum 15 ára aldur er mikið brottfall úr íþróttum. Kristmundur var á þeim aldri ekki alveg ákveðinn í því hvort hann vildi halda áfram.

„Ég hef alveg hugsað um að hætta, oftar en einu sinni örugglega. Maður hefur þó aldrei viljað það þar sem maður er búinn að leggja mikið í þetta. Ég var virkilega að hugsa um að hætta rétt áður en ég tók svarta beltið en ég var hvattur til þess að klára það og sjá svo til.“ Hann hefur ekki séð eftir þeirri ákvörðun og hefur aldrei verið einbeittari eða öflugri en einmitt núna.

Er í heimsklassa

Kristmundur er á því að hann hafi bætt sig þó nokkuð mikið á síðustu tveimur árum. „Ég tók ákvörðun um að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði að gera. Ég byrjaði að æfa meira og taka þessu af fullri alvöru.“ Kristmundur fór einmitt á heimsmeistaramót fyrir tveimur árum og sá þá að hann ætti í fullu tré við heimsklassa bardagamenn og væri í þeirra styrkleikaflokki.

Hugarfar er stór þáttur af taekwondoíþróttinni líkt og í svo mörgum öðrum. „Það skiptir máli að hafa trú á sjálfum sér. Þú ert bara einn inn á vellinum og enginn liðsfélagi með þér. Maður þarf að vera yfirvegaður því um leið og þú byrjar að vera reiður þá missir þú einbeitinguna og ferð frá þínum áætlunum. Ég hef alveg þurft að hugsa um þetta á mínum ferli, ef maður verður of reiður eða æstur. Maður er í raun að passa upp á þetta fari ekki út í að vera slagsmál. Þeim sem þekkja ekki til sýnast þetta kannski vera slagsmál, sem þetta er auðvitað alls ekki.“ Kristmundur segir þó að árásargirni upp að vissu marki sé af hinu góða í þessari íþrótt. Spennandi verður að fylgjast með Keflvíkingnum sparkvissa á næstunni enda á hann sér háleit markmið.