Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Skemmtilegast að spila vörn
Miðvikudagur 22. febrúar 2017 kl. 07:00

Skemmtilegast að spila vörn

Körfuboltasnillingur vikunnar - Krista Gló Magnúsdóttir

Körfuboltasnillingur vikunnar er hin 12 ára Njarðvíkingur Krista Gló Magnúsdóttir. Hún á sér háleit markmið og stefnir á að spila með landsliðinu í framtíðinni. Í NBA boltanum er  Philadelphia 76’ers hennar lið og nýliðinn Ben Simmons í sérstöku uppáhaldi.

Aldur og félag: 12 ára/Njarðvík

Hvað æfir þú oft í viku? Átta sinnum með morgunæfingum og metabolic.

Hvaða stöðu spilar þú? Ég spila eiginlega allar stöður.

Hver eru markmið þín í körfubolta? Að komast í landsliðið.

Skemmtilegasta æfingin? Varnaræfingar.

Leiðinlegasta æfingin? Mér finnst engin æfing leiðinleg.

Eftirlætis körfuboltamaður/kona á Íslandi? Er ekki búin að mynda mér skoðun á því.

Eftirlætis körfuboltamaður/kona í NBA? Ben Simmons.

Lið í NBA? Liðið sem pabbi minn heldur með, Philadelphia 76’ers.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024