Skagamenn hirtu öll stigin
Keflvíkingar lutu í gras í kvöld þegar þeir töpuðu fyrir ÍA á heimavelli sínum, 0-2.
Mörkin komu í sitthvorum hálfleiknum og mátti sjá af leik heimamanna að þeir þurfa að athuga sinn gang ef þeir ætla að snúa við þeirri óheillaþróun sem þeir eru lentir í.
Veðrið spilaði stórt hlutverk í leiknum, sér í lagi í fyrri hálfleik þar sem strekkingsvindur á móti marki Keflvíkinga hamlaði þeim allverulega. Langar sendingar drifu varla neitt og fyrirgjafir Skagamanna voru flestar stórhættulegar.
Sókn ÍA stóð linnulaust frá upphafi og á 18. mín voru þeir nærri því að ná forystunni þegar Ellert Jón Stefánsson átti skot sem Ólafur Gottskálksson missti yfir öxlina og boltinn rann framhjá stönginni.
Á 24. mín áttu Skagamenn annað dauðafæri þegar Stefán Þórðarson setti boltann framhjá eftir sendingu frá Julian Johnson.
Á 41. mínútu komust Skagamenn loks yfir þegar Haraldur Ingólfsson gaf háan bolta inn í teiginn sem fyrrnefndur Julian skallaði í netið fram hjá Ólafi í markinu.
Í seinni hálfleik hafa Keflvíkingar eflaust vonast til að vindurinn yrði þeim eins hagstæður og hann hafði verið fyrir ÍA en þá lægði mátulega og hafði hann hverfandi áhrif eftir það.
Sókn Keflvíkinga var þung í seinni hálfleik en þeim gekk lítið að skapa færi. Raunar áttu Skagamenn hættulegasta færið í upphafi hálfleiksins þar sem Ellert Jón átti gott skot í stöng Keflavíkurmarksins innan úr teig á 55. mín.Keflavík var að spila fínan bolta úti á velli, en fengu rothöggið á 66. mín þegar bakvörðurinn Ólafur Ívar Jónsson skoraði sjálfsmark í öðrum leiknum í röð.
Ellert Jón átti sendingu fyrir markið sem Ólafur Gottskálks slæmdi hendinni í og þaðan hafnaði boltinn í Ólafi Ívari og í markið.
Eftir það virtist allur vindur úr Keflvíkingum og þeir gerðu sig ekki mjög líklega að undanskildum Scott Ramsey og Magnúsi Þorsteinssyni sem komu inn af bekknum á 72. ín og áttu ágætis rispur.
Úrslitin eru slæm fyrir Keflavík sem féllu þar niður í fimmta sætið og þurfa aldeilis að hysja upp um sig stuttbuxurnar ef ekki á illa að fara.„Við vorum að fá allt of ódýr mörk á okkur og það var ekki í fyrsta skiptið“, sagði Milan Jankovic, þjálfari Keflavíkur í leikslok. „Svo vorum við óheppnir með veðrið ar sem við lékum fyrri hálfleik á móti vindi en svo er alveg logn í þeim seinni, en ÍA voru betri en við í kvöld og ég óska þeim til hamingju með sigurinn“.
Haraldur Guðmundssson, miðvörður Keflavíkur, var síður en svo sáttur eftir leikinn. „Við vorum að spila ágætis reitabolta úti á velli en við vorum ekki að skapa okkur nein færi. Þannig er að búið að vera eftir KR leikinn og við verðum að fara að finna lausnir á því.“
VF-myndir/Hilmar Bragi