HSS
HSS

Íþróttir

Sjötti útisigur Grindavíkur i röð!
Sunnudagur 17. ágúst 2008 kl. 23:55

Sjötti útisigur Grindavíkur i röð!

Grindvíkingar fögnuðu sjötta útisigrinum í röð þegar þeir lögðu FH-inga af velli á Kaplakrikavelli í kvöld, 0-1. Fyrir leikinn höfðu Grindvíkingar ekki tapað á útivelli í deildinni síðan þeir biðu lægri hlut fyrir Val, 3-0, í annari umferð.

FH var fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar en Grindvíkingar í 8. sæti. FH byrjuðu leikinn betur þó að Grindvíkingar ættu fyrsta alvöru færið. Það átti Jósef Kristinn Jósefsson. Hann geystist upp vallarhelming FH en skot hans úr þröngu færi var vel varið af Gunnari Sigurðssyni í marki FH.



FH var meira með boltann í fyrri hálfleik en Grindvíkingar sáttu aftarlega á vellinum og vörðust vel. Undir lok fyrri hálfleiks vildu FH fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist fara í hendi leikmanns Grindavíkur. Dómari leiksins, Garðar Örn Hinriksson, var ekki á sama máli og lét leikinn halda áfram. Staðan í hálfleik var því 0-0 í fremur tíðindalitlum fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var fjörugri en sá fyrri. Tomasz Stopla fékk gult spjald snemma í seinni hálfleik og var heppinn að fá ekki rauða spjaldið þegar hann braut aftur af sér skömmu síðar. Milan Stefán Jankovic, þjálfari Grindavíkur, tók hann því útaf og setti Alexander Veigar Þórarinsson inná í hans stað.



Um miðbik seinni hálfleiks dró til tíðinda. Grindvíkingar fengu hornspyrnu sem Scott Ramsey framkvæmdi. Andri Steinn Birgisson var réttur maður á réttum stað og kom þeim gulklæddu yfir með skoti af stuttu færi.

Eftir markið settu FH aukinn þunga í sóknina og fengu nokkur góð tækifæri til að jafna leikinn. Zancarlo Simunic, markmaður Grindvíkinga, var hins vegar í feiknarstuði á milli stanganna og varði glæsilega hvað eftir annað og hélt Grindvíkingum á floti á tímabili. Grindvíkingar beittu skyndisóknum og litlu mátti muna að Scott Ramsey kæmi Grindvíkingum í 0-2 því sending hans fór í varnarmann FH og naumlega yfir mark heimamanna.



Að lokum fögnuðu Grindvíkingar frábærum sigri á bikarmeisturnum en liðið spilaði í kvöld sterka vörn og sýndi mikla þolinmæði. Með sigrinum er liðið komið upp í 7. sæti með 24 stig og eru 15 stigum frá fallsæti. Falldraugurinn ætti því að vera á bak og burt í Grindavík og liðið á góðan möguleika á Evrópusæti ef liðið heldur uppteknum hætti.

Næsti leikur liðsins er gegn Fram eftir viku en Grindvíkingar unnu Fram á Laugardalsvellinum fyrr í sumar, 0-1, þar sem alls fimm Grindvíkingar fengu rauða spjaldið.



VF-MYNDIR/JJK




Bílakjarninn
Bílakjarninn