Sjö Suðurnesjamenn í Stjörnuliði

Einar Árni Jóhansson, þjálfari UMFN, stýrir liði Íslendinganna, en Herbert Arnarson, KR, mun stýra erlendu leikmönnunum.
Íþróttafréttamenn völdu byrjunarliðin, en þjálfararnir völdu fimm leikmenn, að vísu gátu Friðrik Stefánsson og Brenton Birmingham ekki leikið með íslenska liðinu, en Einar valdi tvo leikmenn í viðbót í stað þeirra.
Liðin eru svona:
Íslenskir leikmenn:
Páll Axel Vilbergsson - UMFG, Magnús Þór Gunnarsson - Keflavík, Brynjar Þór Björnsson - KR, Ingvaldur Magni Hafsteinsson - Snæfell, Fannar Ólafsson – KR, Egill Jónasson - UMFN, Jóhann Árni Ólafsson - UMFN, Steinar Kaldal - KR, Arnar F. Jónsson - Keflavík, Jón N. Hafsteinsson - Keflavík, Þorleifur Ólafsson - UMFG og Hörður Axel Vilhjálmsson - Fjölnir.
Lið erlendra leikmanna:
Omari Westley - KR, AJ Moye - Keflavík, George Byrd - Skallagrímur, Jeb Ivey - UMFN, Jeremiah Johnson -UMFG, Nemanja Sovic – Fjölnir, Nate Brown – Snæfell, Theo Dixon - ÍR, Jovan Zdravevski - Skallagrímur, Igor Beljanski - Snæfell, Clifton Cook - Hamar/Selfoss og Mario Myles - Þór Akureyri.