Sjö leikmenn frá Njarðvík og Keflavík í æfingahóp U20
U20 ára lið kvenna í körfu tekur þátt í Evrópukeppninni FIBA Europe í sumar en keppnin fer fram í byrjun júní. Sjö leikmenn hafa verið kallaðir í æfingahóp frá Keflavík og Njarðvík en hópurinn kemur saman eftir miðjan maí og æfir, en eftir æfingadagana mun landsliðsþjálfari hópsins, Finnur Jónsson velja lokahópinn.
Þeir leikmenn sem koma frá Njarðvík og Keflavík eru:
Björk Gunnarsdóttir, Njarðvík.
Erna Freydís Traustadóttir, Njarðvík.
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir, Njarðvík.
Katla Rún Garðarsdóttir, Keflavík.
Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir, Njarðvík.
Svanhvít Ósk Snorradóttir, Keflavík.
Thelma Dís Ágústdóttir, Keflavík.