HSS
HSS

Íþróttir

Sjö leikir í röð án taps
Theódór skorar og skorar í 2. deildinni.
Föstudagur 23. ágúst 2013 kl. 09:14

Sjö leikir í röð án taps

Njarðvíkingar unnu ÍR

Njarðvíkingar unnu góðan sigur á ÍR í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Lokatölur urðu 3-1 en leikið var á Njarðtaksvellinum í Njarðvík við erfiðar aðstæður.

Gestirnir úr Breiðholtinu komust yfir í leiknum eftir 27 mínútur og Njarðvíkingar ekki líklegir til afreka í fyrri hálfleik. Við upphaf seinni hálfleiks náðu Njarðvíkingar að skora úr sinni fyrstu sókn en þar var á ferðinni Ísleifur Guðmundsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Markamaskínan Theódór Guðni Halldórsson innsiglaði svo sigur Njarðvíkinga með tveimur mörkum undir lokin. Eftir leikinn eru Njarðvíkingar með 24 stig í 7. sæti deildarinnar en efsta liðið hefur 32 stig. Þeir grænklæddu hafa ekki tapað síðan 11. júlí en það gera heila sjö leiki án taps í röð.