Sjö Íslandsmeistaratitlar í yngri flokkum
Yngri flokkarnir hafa nú allir lokið keppni á Íslandsmótinu og hefur uppskera Suðurnesjaliðanna verið nokkuð góð eins og búist var við.
Stúlknaliðin voru sérlega dugleg þetta árið og unnu í öllum flokkum nema einum. Grindavík á meistara í 8. og 9. flokki, Keflavík í 10. flokki og Njarðvík í minniboltanum. Strákaliðin hafa að vísu oft borið meira úr býtum en tveir titlar skiluðu sér þó suður þetta árið. Þar var hinn óstöðvandi ’89 árgangur Njarðvíkur sem bætti enn einum titli í safnið í 9. flokki og Njarðvíkurstrákar unnu einnig í minniboltanum.
Það er nú þannig að ekki geta allir unnið, en öll lið í öllum aldursflokkum stóðu sig með mikilli prýði í vetur. Þeir sem unnu titla mega vera stolt af afrekum sínum, en þeir sem ekki urðu svo heppnir líta eflaust á leiktíðina sem góða reynslu sem þau geta byggt á og koma sterkari til leiks að ári.
Mynd: Íslandsmeistarar Grindavíkur í 9. flokki/Af kki.is