Sjö frá Suðurnesjum í æfingahóp U 17
Knattspyrnukonurnar Eva Kristinsdóttir, Anna Rún Jóhannsdóttir og Helena Rós Þórólfsdóttir frá Keflavík, og Alma Garðardóttir, Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir og Kristín Karlsdóttir úr Grindavík hafa verið valdar í 26 manna úrtak fyrir U 17 ára landslið stúlkna. Þær voru einnig í 35 manna æfingahópnum en komust í gegnum niðurskurðinn.