Sjálfsmark skaut Keflvíkingum áfram
Keflavík er komið í 16-liða úrslit VISA-bikarsins eftir sigur á Stjörnunni 2-1 í kvöld.
Keflvíkingar áttu í fullu fangi með lærisveina Bjarna Jóhannssonar úr Garðabænum í upphafi leiks, en fyrsta mark leiksins skoraði Magnús Þorsteinsson á 32. mínútu eftir undirbúning Patriks Redo.
Annað markið kom sex mínútum síðar og var af skrautlegri gerðinni. Þar var um sjálfsmark að ræða þar sem Kári Ársælsson þrumaði knettinum í eigið mark eftir að Magnús og Guðjón Árni Antoníusson höfðu pressað á hann.
Þannig stóð svo leikurinn all þar til Ellert Hreinsson skoraði laglegt mark úr teignum þegar venjulegur leiktími var liðinn.
Þannig er Keflavík komið áfram í 16-liða úrslit þar sem þeir hitta fyrir Suðurnesjaliðin Grindavík, Reyni og Víði.
VF-mynd/Þorgils – Sjálfsmark í uppsiglingu.