Sindri Þór Jakobsson, ÍRB, setti Íslandsmet
Sundmaðurinn Sindri Þór Jakobsson, ÍRB, gerði sér lítið fyrir í gærmorgun og setti Íslandsmet í 200 m flugsundi í karlaflokki og um leið piltamet í sömu grein er hann synti á tímanum 2.07,75.
Sindri Þór er staddut á EM unglinga sem nú fer fram í Belgrad. Hannvarð í 23. sæti af 30 í undanrásunum í flokki 17-18 ára pilta.
Birkir Már Jónsson átti karlametið sem var 2.08,27 en Sindri Þór var að bæta sitt eigið met í piltaflokki um nákvæmlega 1 sekúndu.
Árangur á mótinu hjá sundfólki ÍRB:
Soffía Klemenzdóttir, ÍRB og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, ÍRB eru einnig á EM
Soffía Klemenzdóttir synti 200 m flugsund á 2.22,99 og bætti þar með tíma sinn um 3 sek.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson synti 100 m baksund á tímanum 1.01,27 sem er aðeins frá hans besta tíma.
Sindri Þór synti einnig 50 m flugsund á 26,66 sek. og var rétt við sinn besta tíma.
Meira á vef sundsambandsins.