Silfurdrengirnir stunda nám hjá Keili
Meðal þeirra nemenda hjá Keili eru helmingur íslenska landsliðsins í handbolta, strákarnir okkar. Allir stunda þeir nám í ÍAK einkaþjálfun og munu ljúka því námi í sumar. Tveir þeirra, Guðjón Valur Sigurðsson og Björgvin Páll Gústavsson svöruðu nokkrum spurningum um námið, sem m.a. verður kynnt á opnum degi að Ásbrú á sumardaginn fyrsta.
Hvernig kom það til að helmingur íslenska handboltaliðsins fór í nám í hjá Keili?
Gaui: Fyrir tilviljun datt ég inn á námið hjá Keili og hringdi í Gunnhildi, forstöðumann námsins sem að var meira en til í að hjálpa. Við tökum bóklega hluta námsins í gegnum fjarnám en verklega kennslan er sérstaklega sniðin að landsliðshópnum.
Bjöggi: Það kom ekki annað til greina en að slá til og hóa í sem flesta því að þetta var frábært og spennandi nám sem að fleiri en einn eða tveir gátu nýtt sér.
En af hverju eruð þið að fara í nám í ÍAK einkaþjálfun? Kunnið þið þetta ekki allt?
Bjöggi: Held að það kunni enginn allt. Áður en ég fór í þetta nám taldi ég mig persónulega vera mjög fróðan á öllu tengdu sportinu en strax og námið byrjaði fékk maður beint í æð endalaust af nýjum fróðleik og upplýsingum.
Gaui: Það er alltaf hægt að læra meira. Ég vildi læra meira og líkamann og æfingar og það hef ég svo sannarlega gert. Íþróttamenn og þjálfarar ættu hiklaust að sækja þetta nám. Það eru margir þjálfarar kannski klárir á sportið en styrktar- og ástandsþjálfun er ábótavant.
Bjöggi heldur áfram: Styrktar- og ástandsþjálfun er einn mikilvægasti þáttur í þjálfun og auðvelt að gera mistök í þessum geira og þess vegna mikilvægt að þetta sé í höndunum á einhverjum sem veit hvað hann er að gera. Algengt er að reynsluminnstu þjálfararnir eru settir á yngstu kynslóðina og þar með hafa þeir þjálfarar kannski ekki mikla þekkingu á styrktarþjálfun og þá er mikilvægt að það sé einhver aðili sem hægt sé að leita til innan félagsins.
Báðir eru sammála um að áður en námið hófst áttu þeir aldrei von á því að þeir myndu græða svona mikið á þessu námi eins og raun ber vitni.
„Þarna eru auðvitað rosalega færir kennarar og er maður að læra af þeim bestu í hverjum geira fyrir sig og hjálpar þetta manni mjög mikið bæði sem einkaþjálfari og einnig til að ná enn lengra í handboltanum,“ segja þeir báðir í lokin.
Myndir: Þórir Ólafs og Guðjón Valur einbeittir í kennslu.
Efri myndin:Ingimundur Ingimundarson tekur út lendingar hjá Björgvini Pál.