Sigursælir boxarar að sunnan
Hnefaleikafélag Reykjaness landaði tveimur sigrum á móti um liðna helgi. Hildur Ósk Indriðadóttir háði annan bardaga sinn fyrir hönd HFR, en hún hafði eftirminnilegan sigur á boxkvöldi Ljósanætur í lok ágúst. Nú hafði hún flottan sigur gegn Sigríði Bjarnadóttur hjá Hnefaleikafélagi Akureyrar. Sigríður er talsvert reyndari en Hildur og hefur fleiri bardaga undir belti, en eftir þrjár lotur var Hildur úrskurðaður sigurvegari eftir einróma ákvörðun.
Björn Björnsson frá HFR fagnaði einnig sigri, en hann barðist gegn Elmari Aðalheiðarsyni frá Hnefaleikafélagi Akureyrar. Talið var yfir Elmari eftir gott högg í annarri lotu en bardaginn fór allar þrjár loturnar og endaði á dómaraúrskurði.
HFR tók líka þátt í diploma unglingamóti nú á dögunum með góðum árangri. Þar kepptu fimm unglingar frá HFR á aldrinum 12-15 ára og hlutu viðurkenningu fyrir sinn árangur. Þar bar mest á Tómasi Ingólfssyni sem var að fá sitt þriðja gullstig, en þá á hann bara tvö stig eftir í gullmerki, sem er hæsta viðurkenning í diploma hnefaleikum.
Talið var yfir Elmari eftir þetta högg frá Birni í annarri lotu en bardaginn fór allar þrjár loturnar.