Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Íþróttir

Sigurpáll krækti í tvenn silfur
Sigurpáll á verðlaunapalli lengst til vinstri.
Þriðjudagur 26. mars 2013 kl. 12:37

Sigurpáll krækti í tvenn silfur

Sigurpáll Albertsson vann tvenn silfurverðlaun á vormóti Júdósambands Íslands. Tveir fulltrúar frá Grindavík kepptu á mótinu, Marcin Ostrowski og Sigurpáll Albertsson. Frá þessu er greint á heimasíðu UMFG.

Marcin keppti í -66 kg flokki 15-16 ára. Hann vann fyrstu glímuna sína en gat svo ekki haldið áfram keppni vegna meiðsla og komst því ekki á verðlaunapall.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Sigurpáll keppti í tveimur aldursflokkum. Í 17-19 ára flokki var hann færður upp um þyngdarflokk og keppti í +100 kg flokki. Einnig keppti hann í -100 kg flokki fullorðinna.

Í 17-19 ára aldursflokknum glímdi hann tvisvar og vann aðra glímuna og hafnaði því í öðru sæti. Í fullorðinsflokknum glímdi hann þrisvar. Hann vann tvær þeirra og krækti þannig í annað silfur.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25