Sigurjón endurkjörinn formaður GSG - 7,3 milljóna hagnaður
Aðalfundur Golfklúbbs Sandgerðis fór fram í gærkvöldi og mættu um 30 félagsmenn á fundinn. Töluverð endurnýjun varð í stjórn GSG. Formaðurinn Sigurjón Gunnarsson gaf kost á sér til áframhaldandi starfa og var hann einróma kosin til eins árs.
Ársreikningar voru samþykktir með 7,3 milljóna kr.- hagnaði og skýrist það einna helst á styrk frá Sandgerðisbæ vegna vélakaupa en klúbburinn keypti vélar fyrir 6,3 milljónir kr.- Félagafjöldi stóð nánast í stað á milli ára en skráðir félagar í GSG eru í dag 211 en það er svipaður fjöldi og hefur verið síðustu ár.
Almenn hækkun á félagsgjöldum var samþykkt 5.000 kr.- og fer þá einstaklingsgjald fullorðna í 50.000 kr.- Hjónagjald fer í 70.000 og 67 ára og eldri greiða 25.000 kr.- Nokkur umræða var um kostað við áburðarkaup og lagt var til að sendur yrði út valgreiðsluseðill uppá 2.500 kr.- til að standa straum af áburðakaupum.
Kosið var um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og þeir sem kosnir voru eru: Erla Jóna Hilmarsdóttir og Ásgeir Eiríksson. Hafþór B. Birgisson gaf ekki kost á sér áfram og í hann stað var kosinn Kristinn E. Jónsson til eins árs. Varamenn voru kosnir: Sigríður Erlingsdóttir og Sigurður Kristjánsson.
Nánar á Kylfingur.is