Sigurinn árið ‘97 var sætastur
Stuðningsmaðurinn Jónína Steinunn Helgadóttir
„Ég vona svo sannarlega að Keflvíkingar komi með bikarinn heim, hvernig sem þeir fara að því. En til að segja einhverjar tölur skulum við hafa það 1-2 fyrir Keflavík,“ segir Jónína Steinunn Helgadóttir sem er dyggur stuðningsmaður Keflavíkurliðsins.
Hvað kemur til með að ráða úrslitum í svona stórleik?
„Kristján og strákarnir þurfa að gíra sig upp í góða stemningu. Þeir verða að hafa trú á verkefninu en mega ekki verða yfirspenntir. Síðast en ekki síst verðum við stuðningsmennirnir að láta vel í okkur heyra, það skilar sér inná völlinn sem 12. leikmaðurinn.“
Jónína segist örugglega hafa farið á alla bikarúrslitaleiki hjá Keflavík eftir að hún komst til vits og ára, en þeir eru þó mis eftirminnilegir að hennar mati. „Ég held að sigurinn 1997 sé sá eftirminnilegasti þar sem dramatíkin var allsráðandi. Tveir leikir, framlenging og vítakeppni til að knýja fram úrslit - ekkert eins sætt. Bikarinn 2006 er líka minnisstæður, skemmtilegar móttökurnar við Sparisjóðinn sáluga þar sem allir vildu „Kristján sem forseta". Nú er hins vegar kominn tími til að hampa bikarnum á svölunum við Sunnubrautina.“