Sigurður þjálfari UMFN: Féllum á spennustiginu – sjáið myndasafn úr leiknum
„Margir minna manna voru alltof spenntir og náðu sér ekki á strik. Keflvíkingar spiluðu betur og það er bara leiðinlegt fyrir okkur en svona er þetta bara stundum,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkinga eftir tapið gegn Keflvíkingum í Subway bikarnum í gærkvöldi.
Sigurður segir að þetta sé annar slaki leikur liðsins í vetur en það sé tveimur of mikið og þeir verði ekki fleiri slíkir í vetur.
„Það voru hreinlega flestir ekki með, það fóru engin skot ofan í.
Keflvíkingar léku vel, það var kraftur í vörninni og við lentum í vandræðum. Það er ekki hægt að ætlast til að vinna alla leiki en það var alger óþarfi að sýna svona lélegan leik gegn Keflavík,“ sagði gamli Keflavíkurþjálfarinn sem var mjög ósáttur með tapið. Hann gekk að Guðjóni þjálfara Keflavíkur eftir leikinn og þakkaði honum fyrir viðureignina en þaðan lá leið hans beint inn í búningsklefa án þess að taka í hendur leikmanna eins og venja er eftir leiki.
Það var ýmislegt sem vakti athygli í leiknum eins og það að það voru tekin 94 vítaskot í leiknum og Keflavík átti 54 þeirra. Lokapartur leiksins bar þess merki og hann var ekki eins fjörugur og í fyrri hálfleik. Það er orðið þó nokkuð langt síðan leikur milli þessara liða var jafn en Njarðvík vann deildarleikinn í deildinni örugglega og einnig leikinn í Powerade bikarnum í haust.
Sjá myndasafn úr leiknum hér. Ljósmyndirnar tóku Páll Orri Pálsson og Páll Ketilsson.