Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigurður og Birna best hjá Keflavík
Laugardagur 25. apríl 2009 kl. 10:13

Sigurður og Birna best hjá Keflavík


Sigurður Þorsteinsson og Birna Valgarðsdóttir voru kjörnir leikmenn ársins hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur en lokahóf deildarinnar fór fram í fyrrakvöld þar sem einnig var valið sameiginlegt lið ársins. Uppskera ársins var rýr og engir titlar komu í hús hjá meistaraflokkunum sem er harla óvenjulegt en liðin hömpuðu bæði titlum í fyrra.

Eftirfarandi verðlaun voru veitt á lokahófinu:

Stelpur:
Besti leikmaður: Birna Valgarðsdóttir
Besti varnarmaður: Pálína Gunnlaugsdóttir
Mestu framfarir: Hrönn Þorgrímsdóttir

Strákar:
Besti leikmaður: Sigurður Þorsteinsson
Besti varnarmaður: Jón Nordal Hafsteinsson
Mestu framfarir: Elvar Sigurjónsson

Lið ársins: Pálína Gunnlaugsdóttir, Birna Valgarðsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Sigurður Þorsteinsson og Hörður Axel Vilhjálmsson

Fyrr um daginn áttust við Keflavíkurlið karla 2009 gegn Keflavíkurliðinu frá 1989 í bráðfjörugum. Aukakílóin og stirðleikinn áttu stóran þátt í tapi 1989 liðsins þrátt fyrir að þeir gerðu sitt bestu í að sýna snilldartakta á köflum.
Sigurður Ingimundarson ítrekaði að þeir væru að spila eftir reglum frá 1989, en í þá daga var greinilega oft gefið 4 stig fyrir þriggja stiga körfu, 3 víti ef fyrsta vítið fór ekki ofaní og þar fram eftir götunum. Þrátt fyrir þessa forgjöf, þá voru lokatölur 74-72 fyrir ungu strákunum. Sjúkraliðar voru tilbúnir með súrefni fyrir eldri mennina eftir leik og fullyrtu margir þeirra að körfuhringirnir höfðu þrengst frá því þegar
þeir spiluðu á sínum tíma, en svo segir á heimasíðu Keflavíkur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eldri kapparnir hjá Keflavík: Einn þeirra, Nökkvi Jónsson úr Grindavík lék í úrvalsdeildinni í vetur.