Sigurður lagði Harald
Sænska liðið Djurgarden lagði norska liðið Aalesund 2-1 í gærkvöldi. Þar mættust þeir Sigurður Jónsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur og Haraldur Freyr Guðmundsson fyrrum leikmaður Keflavíkur í æfingaleik liðanna.
Haraldur gerði fyrsta mark leiksins og kom Aalesund í 1-0 en liðsmenn Sigurðar í Djurgarden gerðu næstu tvö mörk leiksins og höfðu því 2-1 sigur.