Sigurður Ingimundarson endurráðinn þjálfari meistaraflokks karla
Við lok síðustu leiktíðar rann út samningur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur við þjálfarann sigursæla, Sigurð Ingimundarson. Leiktíðin var hans sjöunda í röð og árangurinn stenst allar kröfur, þrisvar sinnum Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari, þar að auki fjórum sinnum deildarbikarmeistari. Stjórnin komst auðveldlega að þeirri niðurstöðu að Sigurður væri efstur á óskalistanum fyrir næstu leiktíð. Menn settust því niður og ræddu málin í nokkur skipti og fljótlega kom í ljós að áhuginn var gagnkvæmur. Báðir aðilar vildu þó aðeins hvíla sig á körfuboltamálum og því liðu nokkrar vikur án þess að ákvörðun var tekin. Um síðustu helgi fóru menn síðan saman í golf og gengu frá málum, þannig að allri óvissu hefur verið eytt – Sigurður mun þjálfa Keflavíkurdrengi á næstu leiktíð. Stjórnin er ánægð yfir því að samningar tókust og veit vel að metnaður og reynsla Sigurðar á eftir að leiða Keflavík til góðra afreka á komandi leiktíð sem verður hans áttunda með liðið.
Af heimasíðu Keflavíkur; keflavik.is/karfan!
Af heimasíðu Keflavíkur; keflavik.is/karfan!