Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigurður Gunnar með tilboð frá Grindavík og KR
Fimmtudagur 28. apríl 2011 kl. 11:41

Sigurður Gunnar með tilboð frá Grindavík og KR

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur í körfubolta, stendur nú í erfiðum ákvörðunum vegna tilboða sem berast til hans fyrir næsta tímabil. Bæði Grindavík og KR hafa skotið að Sigurði tilboði en hann stóð sig frábærlega í úrslitakeppninni nú í vor.

„Ég hef ekki tekið neinar ákvarðanir gagnvart tilboðunum en þetta kemur bara allt í ljós,“ sagði Sigurður í samtali við Víkurfréttir í dag.

Birgir Már Bragason, varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sagðist vona til þess að Sigurður myndir verða áfram hjá Keflavík. „Við höfum auðvitað boðið honum áframhaldandi samning og vonumst við til þess að þetta klárist fyrir helgi. Það eru vonandi meiri líkur en minni,“ sagði Birgir.

[email protected]

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024