Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigurður Gunnar besti Íslendingurinn í 8 liða úrslitunum
Mánudagur 28. mars 2011 kl. 09:23

Sigurður Gunnar besti Íslendingurinn í 8 liða úrslitunum

Keflvíkingurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson skilaði hæstu framlagi íslensku leikmannanna í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla sem lauk með þremur oddaleikjum þann 24. mars sl. Sigurður Gunnar var 0.5 framlagsstigum á undan KR-ingnum Pavel Ermolinskij.

Sigurður Gunnar var með 23,3 stig, 7.0 fráköst og 2,0 stoðsendingar að meðaltali á 31 mínútu í einvíginu á móti ÍR en hann hitti þar úr 72,5 prósent skota sinna og setti niður 73,3 prósent vítanna. Sigurður var með 26 stig og 5 fráköst í oddaleiknum. Sigurður var með framlag upp á 28,0 að meðaltali í leik. Hann hækkaði sig frá því í deildarkeppninni þar sem hann var með 15,1 stig og í 18,8 í framlagi að meðaltali í leik.

Keflavíkingurinn Hörður Axel Vilhjálmsson var í þriðja sætinu af íslensku leikmönnunum en hann var með 15,7 stig, 6,3 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hörður var með 20,33 framlagssstig í leik en hann lækkaði reyndar í framlagi í hverjum leik eftir að hafa farið á kostum með 21 stigi, 8 fráköstum, 12 stosðendingum og 35 framlagsstigum í fyrsta leiknum.

Hæsta framlag íslenskra leikmanna í 8 liða úrslitunum:
1. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Keflavík 28,00
2. Pavel Ermolinskij, KR 27,50
3. Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík 20,33
4. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 16,00
4. Ólafur Ólafsson, Grindavík 16,00
6. Brynjar Þór Björnsson, KR 15,50
7. Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík 15,00
8. Örn Sigurðarson, Haukar 14,00
8. Finnur Atli Magnússon, KR 14,00
10. Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík 13,33

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024