Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigurður Björgvinsson sæmdur gullmerki
Sigurður Björgvinsson.
Fimmtudagur 11. desember 2014 kl. 13:35

Sigurður Björgvinsson sæmdur gullmerki

Sjö leikmenn fengu silfurmerki Knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Sigurður Björgvinsson fékk gullmerki Knattspyrnudeildar þegar heiðursmerki deildarinnar voru veitt í jólaboði deildarinnar á dögunum.  Knattspyrnudeild hof að veita heiðursmerki árið 2010 en tveimur árum seinna var sett reglugerð um veitingu merkjanna.  Þar kemur fram að þeir sem hafa leikið 200 leiki fyrir Keflavík á Íslandsmóti skuli fá gullmerki.  Fyrr á árinu fengu þeir sem höfðu náð þeim áfanga merki en þá átti Sigurður ekki heimangengt og fékk því gullmerkið afhent núna.
 
 
Sjö leikmönnum Keflavíkur var einnig veitt silfurmerki Knattspyrnudeildar þegar heiðursmerki voru veitt í jólaboði deildarinnar á dögunum. Knattspyrnudeild hóf að veita heiðursmerki árið 2010 en tveimur árum seinna var sett reglugerð um veitingu merkjanna.  Þar segir að þeir sem hafa leikið 100 leiki fyrir Keflavík á Íslandsmóti skuli fá silfurmerki.  Nokkur hópur leikmanna hefur náð þessum áfanga og var ákveðið að byrja á því að veita sjö núverandi leikmönnum liðsins merkið.  Þeir sem eiga eftir að fá merki fá þau svo afhent á næsta ári.
 
 
Einar Orri Einarsson er 25 ára og komst í 100 leikja klúbbinn í sumar.  Hann lék fyrst með meistaraflokki árið 2005 og hefur leikið 109 leiki í Íslandsmóti, alla í efstu deild.  Hann hefur alls leikið 167 leiki með meistaraflokki þegar bikarleiki, leikir í Evrópukeppnum og leikir í deildarbikar eru teknir með.
 
 
Haraldur Freyr Guðmundsson er fyrirliði Keflavíkur en hann er 32 ára.  Hann hóf að leika með meistaraflokki árið 1999 og er kominn með 166 leiki í Íslandsmótinu.  Alls hefur hann leikið 257 leiki fyrir Keflavík.
 
 
Guðjón Árni Antoníusson er nýkominn aftur til Keflavíkur frá FH.  Hann er 31 árs gamall og lék fyrst með meistaraflokki Keflavíkur árið 2002.  Hann hefur leikið 170 leiki í Íslandsmóti og 271 leiki alls.
 
 
Hólmar Örn Rúnarsson sneri einnig nýlega aftur eftir nokkura ára dvöl í Hafnarfirði.  Hólmar Örn er 33 ára en hann á einmitt afmæli í dag, 10. desember.  Hann lék sinn fyrsta leik meistaraflokki árið 2000.  Hann á að baki 162 leiki í Íslandsmóti og 256 leiki alls fyrir Keflavík.
 
 
Hörður Sveinsson er 31 árs og spilaði fyrst með meistaraflokki árið 2001.  Hann er nú kominn með 165 leiki í Íslandsmóti og hefur leikið 234 leiki alls.
 
 
Jóhann Birnir Guðmundsson er 37 ára gamall.  Hann lék fyrst með meistaraflokki árið 1994 og hefur alls leikið 160 leiki í Íslandsmóti, alla í efstu deild.  Hann á að baki 236 leiki fyrir Keflavík í öllum keppnum.
 
 
Ómar Jóhannsson er 33 ára og spilaði fyrst með meistaraflokki árið 2001.  Hann hefur leikið 180 leiki í Íslandsmótinu og alls 271 leik.  Hann lék ekki með Keflavík í sumar vegna meiðsla.
 
Myndir: Jón Örvar Arason.  

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024