Bygg
Bygg

Íþróttir

Fimmtudagur 2. desember 1999 kl. 16:20

SIGURÐUR BESTUR KEFLVÍKINGA

Keiluspilarinn Sigurður B. Bjarnason hefur náð bestum árangri keflvískra keilumanna þegar 9. umferðum er lokið í Íslandsmótinu. Sigurður er með 183.17 pinna lagða að meðaltali og er í átjanda sæti þeirra keilumanna sem bestu skori hafa náð á tímabilinu. Keflavík A er í níunda sæti 1. deildar karla með 24 stig og næstur Keflvíkinga að stigaskori er Ingiber Óskarsson, sigurvegarinn í Meistarakeppni Keflavíkur, sem er með 179.86 að meðaltali. Hæstur allra keilumanna er ÍR-ingurinn Ásgeir Þór Þórðarson með 198.25 pinna meðaltal. Viðmiðun meðaltals eru besta skor hvers einstaklings á þremur keppnisstöðum og á Ásgeir Þór eftir að heimsækja tvo þeirra. Úrslitin í 9. umferð voru eftirfarandi: 1. deild karla Keilugarpar 4 - Keflavík a 4 1. deild kvenna Fellurnar 0 - Keilusystur 8 2. deild karla Sveitamenn 8 - Sveigur 0 Stórskotaliðið 6 - Lávarðarnir 2 3. deild karla Keflavík c 2- Keflavík d 6
Bílakjarninn
Bílakjarninn