Sigurbjörn hlaut starfsbikar Keflavíkur
Sigurbjörn Gunnarsson hlaut starfsbikar Keflavíkur á aðalfundi félagsins í vikunni. Hefur hann starfað mikið fyrir íþróttahreyfinguna. Hóf feril sinn með því að sitja í unglingaráði UMFK 1974, í stjórn UMFK 1977 – 1987, framkvæmdastjóri UMFK 1980, varamaður í stjórn ÍBK í nokkur ár, framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 1984 haldið í Keflavík og Njarðvík, hlaut silfurmerki UMFK 1989. Í stjórn UMFÍ í 18 ár, situr í lottónefnd UMFÍ sem er að endurskoða skiptinguna á lottógreiðslum til aðildarfélaga UMFÍ, í rekstrarstjórn Þrastalundar, í stjórn Íslenskrar getspár frá 1987.
Sigurbjörn hefur setið í ýmsum öðrum nefndum og ráðum og hlaut gullmerki UMFÍ 1999. Í tilkynningu frá félaginu segir að ómetanlegt sé fyrir félag að eiga svona félaga. „Sigurbjörn hefur ávallt verið reiðubúinn að taka að sér þau verkefni sem hann er beðinn um. Sigurbjörn er mikill atorku maður og hefur reynst bæði félaginu og UMFÍ einkar vel.“
Á aðalfundinum var Rúnar V. Arnarson, formaður knattspyrnudeildarinnar, sæmdur silfurmerki Keflavíkur fyrir 10 ára stjórnarsetu, og Erlingur Hannesson var sæmdur bronsmerki félagins sem og Hrannar Hólm körfuknatteiksdeild, Lilja Karlsdóttir badmintondeild og Rúnar Georgsson körfuknattleiksdeild. Bronsmerkið er veitt fyrir fimm ára stjórnarsetu.
Þá veiti Birgir Gunnlaugsson, stjórnarmaður UMFÍ, þeim Guðjóni Axelssyni, Sigurvini Guðfinnssyni og Þórði Magna Kjartanssyni stjórnarmönnum í aðalstjórn Keflavíkur starfsmerki UMFÍ.
Myndir af heimasíðu Keflavíkur