Sigurbergur og Hilmar á leið til Kína
Keppa á Ólympíuleikum æskunnar
Keflvíkingarnir Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane, eru á leið til Kína með U-15 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Þeir félagar eru báðir fæddir árið 1999 og leika með 3. flokki Keflavíkur. Landsliðið er á leið á Ólympíuleika æskunnar sem fara fram í Nanjing í Kína dagana 16.-28. ágúst. Ísland er þar í riðli með Hondúras og Perú. Liðið leikur gegn Hondúras 15. ágúst og Perú þann 18.