Sigur nauðsynlegur

Sigur er nauðsynlegur hjá Keflavík í kvöld því það er ekki vænlegur kostur að fara 2-0 undir í Hafnarfjörðinn. Keflavíkurkonur eiga titil að verja og verða að leika betur í kvöld en þær gerðu í fyrsta leik ætli þær sér að verja titilinn.