Brons
Brons

Íþróttir

Sigur í endurkomu Loga
Sunnudagur 15. september 2013 kl. 22:03

Sigur í endurkomu Loga

Grindvíkingar unnu eftir framlenginu

Njarðvíkingar unnu sigur gegn Þór Þorlákshöfn í Lengjubikar karla í körfubolta 95-87. Leikurinn var fyrsti leikur Loga Gunnarssonar í græna búningnum í langan tíma. Logi skoraði 14 stig í leiknum en Elvar Friðriksson leiddi Njarðvíkinga með 26 stig.

Njarðvíkingar leiddu allan fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta vöknuðu gestirnir frá Þorlákshöfn til lífsins og komust yfir í stutta stund. Undir lokin gerðu Njarðvíkingar þó nóg til þess að landa sigri en ekki mátti miklu muna.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Nokkur fjöldi áhorfenda lagði leið sína í Ljónagryfjuna og hefur endurkoma Loga líklega haft þar nokkur áhrif.