Sigrar hjá Keflavík og Grindavík í fótboltanum
Grindvíkingar unnu Hött örugglega 4-1 í Lengjubikarnum í knattspyrnu í gær en leikið var í Reykjaneshöllinni. Grindvíkingar komust í 2-0 með tveimur mörkum á stuttum kafla um miðbik fyrri hálfleiks og Pape Mamadou Faye bætti síðan við þriðja markinu og öðru marki sínu rétt fyrir leikhlé.
Pape innsiglaði síðan þrennu sína í síðari hálfleiknum áður en Högni Helgason náði að klóra í bakkann fyrir Hött.
Grindvíkingar enduðu með níu stig í riðlinum og sitja í fjórða sætinu en Höttur er með þrjú stig í botnsætinu fyrir síðasta leik sinn.
Keflvíkingar unnu svo sigur á ÍR með einu marki gegn engu. Arnór Ingvi Traustason skoraði mark Keflvíkinga. Keflavík er öruggt með annað af tveimur efstu sætum riðilsins og þar með sæti í 8-liða úrslitunum.