Sigrar hjá Grindavíkurstúlkum og Njarðvíkingum
Grindavíkurstúlkur léku gegn Sindra í Borgunarbikarnum og sigruðu stórt 5-2 á Grindavíkurvelli.
Þær skoruðu þrjú mörk á fyrstu 17. mínútum leiksins, Elena Brynjarsdóttir, Rilany Da Silva og Anna Þórunn Guðmundsdóttir. Sara Hrund Helgadóttir bætti fjórða markinu við í fyrri hálfleik. Í þeim síðari svöruðu Sindrastúlkur fyrir sig með tveimur mörkum en þær grindvísku bættu við enn einu í blálokin og var þar að verki Berglind Ósk Kristjánsdóttir. Lokastaðan 5-2.
Í Njarðvík unnu heimamenn góðan sigur á Aftureldingu í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í gær. Lokatölur urðu 1-0 og skoraði Andri Fannar Freysson sigurmark heimamanna á 75. mínútur.
Andri Fannar Freysson skoraði sigurmark Njarðvíkinga.