Sigrar hjá Grindavík og Njarðvík: Þorleifur fór hamförum

Þorleifur Ólafsson fór hreint út sagt á kostum í liði Grindavíkur í kvöld er hann setti niður 36 stig fyrir heimamenn. Þorleifur gerði 34 stig í síðari hálfleik en hann sallaði niður 8 þriggja stiga körfum í síðari hálfleik.
Þórsarar leiddu 37-50 í hálfleik en Grindvíkingar mættu ákveðnir til síðari hálfleiksins og með stórleik frá Þorleifi, góðri liðsvörn og vasklegri framgöngu hjá Jamaal Williams í teignum tókst Grindvíkingum að landa sigri. Cedric Isom og Luka Marolt voru bestu menn Þórsara í kvöld en máttu sín lítils gegn stórleik Þorleifs.
Lokatölur í Grindavík voru 107-95 heimamönnum í vil. Í Grafarvogi lögðu Njarðvíkingar Fjölni 83-98 og í Stykkishólmi hafði Snæfelli nauman 87-83 sigur á ÍR svo baráttan um 4. sætið í deildinni ræðst ekki fyrr en í síðustu umferðinni næstkomandi þriðjudag.
Mynd: Þorleifur Ólafsson var maður leiksins í Röstinni.