Sigmundur í Frakklandi
Körfuknattleiksdómarinn, Sigmundur Már Herbertsson, frá Reykjanesbæ var staddur í Frakklandi í gærkvöldi þar sem hann dæmdi leik franska liðsin USVO og Dynamo frá Moskvu. Keppt var í EuroLeague kvenna í Valenciennes. Frá þessu er greint á www.kki.is.
Meðdómari Sigmundar í leiknum var Neil Wilkinson frá Englandi. Þess má geta að heimaliðið vann leikinn 73-64.
Sigmundur dæmir fyrir Njarðvíkinga í Iceland Express deildinni hér heima en hann er einn reyndasti körfuknattleiksdómari landsins og var valinn besti dómarinn í Intersport-deildinni á síðustu leiktíð.