Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigmundur dæmir í Noregi
Miðvikudagur 19. september 2007 kl. 09:03

Sigmundur dæmir í Noregi

Sigmundur Már Herbertsson, körfuknattleiksdómari, hefur fengið tilnefningu frá FIBA en hann mun næsta laugardag dæma leik Noregs og Bosníu Hersegóvínu í úrslitakeppni B deildar í Evrópukeppni kvenna.

 

Þetta er fyrri leikur liðanna en seinni leikurinn verður leikinn í Bosníu Hersegóvínu 26. september. Sigurvegarinn úr viðureignunum tveimur vinnur sér sæti í A deild að ári ásamt sigurvegaranum úr viðureign Breta og Hollendinga. Íslenska liðið komst ekki í úrslitakeppnina í ár.

 

Meðdómari Sigmundar í leiknum er Johann Jeanneau frá Frakklandi og eftirlitsmaður er Jesper Brixen frá Danmörku.

www.kkdi.is

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024