Sigmundur dæmir í Evrópukeppnum
Dómarinn Sigmundur Már Herbertsson frá Njarðvík hélt í gær til Eistlands þar sem hann mun dæma tvo leiki í Evrópukeppnum.
Í kvöld er það leikur heimamanna í Tartu University Rock og ETHA Engomi frá Kýpur en leikurinn er í L riðli FIBA Europe Cup karla. Á morgun miðvikudag dæmir Sigmundur svo leik Eista og Hollendinga í undankeppni EuroBasket kvenna 2017. Frá þessu er greint á KKÍ.is.