Sigmundur dæmir í Evrópukeppni
Njarðvíkingurinn Sigmundur Már Herbertsson mun í kvöld dæma í Evrópukeppni FIBA Europe, Eurochallenge í körfubolta. Sigmundur mun dæma leik Bakken Bears gegn Ural Ekaterinburg í Danmörku.
Sigmundur Már er eini virki FIBA dómari okkar íslendinga í körfuboltanum og hefur dæmt þó nokkuð fyrir áramót sem og síðastliðin ár fyrir FIBA Europe. Leikurinn í kvöld fer fram í Risskov og hefst kl. 18.15.
Hægt verður að fylgjast með beinni tölfræðilýsingu á vef FIBA Europe.