Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sigmundur dæmir í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna
Föstudagur 2. febrúar 2007 kl. 13:24

Sigmundur dæmir í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna

Sigmundur Már Herbertsson hefur fengið tilnefningu frá FIBA Europe til að dæma leik í 16 liða úrslitum EuroCup kvenna.

Um er að ræða seinni leik rússneska liðsins Nadezhda og franska liðsins ESB Lille Metropole, en fyrri leikurinn fór fram í gærkvöld í Rússlandi, þar sem heimastúlkur höfðu sigur 72-69.

Seinni leikurinn fer fram í Frakklandi 8. febrúar næstkomandi og er Sigmundur aðaldómari leiksins, en meðdómari hans er Vincent Delestree frá Belgíu. Eftirlitsmaður er Victor Maas frá Spáni.

 

Sigumundur dæmir fyrir hönd UMFN í íslensku deildunum.

 

www.kki.is  

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024