ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Íþróttir

Sigmundur dæmir í  Svíþjóð
Miðvikudagur 11. desember 2013 kl. 08:31

Sigmundur dæmir í Svíþjóð

Njarðvíkingurinn Sigmundur Már Herberttsson, FIBA Europe dómari, er staddur í Evrópu um þessar mundir þar sem hann dæmir í Euro Challenge karla og Euro Cup kvenna í körfubolta.

Í gær dæmdi hann karlaleik Södertälje BK og BK Ventspils og á fimmtudaginn mun hann dæma kvennaleik Norrköping Dolphins og Mersin Büyüksehir Belidiye. Báðir leikirnir fara fram í Svíþjóð.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Meðdómarar og eftirlitsmenn sem verða með Sigmundi í báðum leikjunum koma frá Litháen, Póllandi og Skotlandi, en sama teymi sér um báða leikina. Frá þessu er greint á síðu KKÍ.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25