Íþróttir

Sigmundur dæmdi á EM
Þriðjudagur 25. júlí 2017 kl. 10:23

Sigmundur dæmdi á EM

Njarðvíkingurinn Sigmundur Már Herbertsson var á meðal dómara á Evrópumóti U20 landsliða í körfuknattleik á dögunum en íslenska U20 landsliðið endaði mótið í áttunda sæti.

Sigmundur er FIBA dómari en hann dæmdi sjö leiki á níu dögum, þar af nokkra stóra leiki. Hann dæmdi meðal annars leik Serbíu og Litháen, sem var úrslitaleikur um 5. sæti mótsins. Sigmundur er einn fremsti dómari Íslands og hefur til að mynda einokað verðlaunin um besta dómara Dominos deildarinnar síðustu ár.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024