Siggi Ingimundar áfram með Keflavík
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, Íslandsmeistara karla í körfuknattleik, skrifaði í kvöld undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Hann tók þar með af allan vafa um framtíð sína en vitað var að fleiri lið í deildinni höfðu sýnt því áhuga að njóta starfskrafta hans, enda einn sigursælasti þjálfari síðustu ára.
Við sama tilefni skrifuðu sjö leikmenn undir nýja tveggja ára samninga við liðið, þar á meðal þeir Jón Norðdal Hafsteinsson og Þröstur Leó Jóhannsson.
Viðtal við Sigurð er væntanlegt á VefTV hér á Víkurfréttum innan skamms…