Síðasti heimaleikur Keflvíkinga
Valsmenn koma í heimsókn á Keflavíkurvöll í dag kl. 16:00 í sautjándu og næst síðustu umferð Landsbankadeildarinnar. Valsmenn eru í 2. sæti deildarinnar með 27 stig og gæta enn orðið Íslandsmeistarar en það er langsótt. Keflvíkingar hafa 23 stig í 4. sæti deildarinnar og ætla sér ekkert annað en Evrópusæti i deildinni en það er hvergi nærri öruggt í þessari hnífjöfnu deild. Leikurinn í dag er síðasti heimaleikur Keflvíkinga í Landsbankadeildinni í sumar en þeir mæta svo Breiðablik í 18. umferð deildarinnar í Kópavogi.